Hellisbúarnir bjóða þig velkomin í

Laugarvatnshella

Getur þú ímyndað þér hvernig það er að búa í helli?

Komdu í heimsókn í Laugarvatnshella og við munum veita þér lifandi innsýn í líf venjulegra íslenskra fjölskyldna sem bjuggu í helli fyrir tæpum 100 árum. Laugarvatnshellar eru umvafðir mikilfenglegri náttúru og aksturinn tekur ekki nema um 60 mín frá Reykjavík.

Síðustu hellisbúarnir á Íslandi

Fyrir tæpum 100 árum bjó venjuleg Íslensk fjölskylda í Laugarvatnshellum!

Hellarnir hafa nú verið endurgerðir í þeirri mynd sem þeir voru í þegar búið var í þeim fyrir tæpri öld síðan.

Komdu í heimsókn og við munum fara með þig um hellana og umhverfi þeirra og segja sögur af ástum og erfiðleikum hellisbúanna. Ferðin tekur 20 mínútur og er farið af stað á 30 mínútna fresti. Fyrir eða eftir leiðsögnina getur þú sest niður í tjaldinu okkar með kaffibolla og kruðerí. Til að upplifun gestanna okkar verði eins góð og mögulegt er takmörkum við fjöldann í hverri ferð við 20. Það getur því verið góð hugmynd að panta hér á heimasíðunni áður en lagt er af stað.

Laugarvatnshellar eru tveir manngerðir hellar sem eru staðsettir á milli Þingvalla og Laugarvatns. Engar heimildir eru til sem benda til hvenær eða hver bjó þá til, það eru þó uppi kenningar um að þeir hafi verið gerðir fyrir landnám af Pöpum.

Í gegnum aldirnar voru hellarnir notaðir af fólki og búfénaði. Góðar beitarlendur eru á Laugarvatnsvöllum og var sauðfé því oft rekið þangað og hellarnir notaðir sem skjól. Eftir að bera fór á draugagangi hættu smalar að vilja vera í hellunum yfir nótt og lagðist sá siður fljótt af.

Árið 1910 fluttu ung hjón, Indriði Guðmundsson og Guðrún Kolbeinsdóttir í hellana og bjuggu þar í eitt ár.

Árið 1918 flutti annað ungt, nýgift par í hellana, þetta voru þau Jón Þorvarðsson og Vigdís Helgadóttir. Þau bjuggu í hellunum í fjögur ár og eignuðust þrjú börn á þeim tíma.

Báðir ábúendirnir voru með hefðbundinn búskap í hellunum. Þeir voru með kindur, hesta og eina kú. Settar voru niður kartöflur, ber tínd og veiddar rjúpur. Til að afla tekna voru farnar ferðir til Reykjavíkur þar sem seldar voru rjúpur. Báðar fjölskyldurnar voru með greiðasölu og seldu veitingar til þeirra sem leið áttu hjá en hellarnir eru í alfaraleið þeirra sem áttu erindi til Reykjavíkur úr sveitinni. Einnig þegar fara átti frá höfuðborginni að skoða Gullfoss og Geysi var gjarnan stoppað í hellunum og áð.

Við erum staðsett

milli þingvalla og Laugarvatns

Opnunartímar

Við erum opið frá 10 – 18 alla dagar. 

samstarfsaðilar

Leyfi

vottun

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur.